We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Hja​ð​ningar​í​mur

from Kv​æ​ð​ama​ð​r by Sigurboði

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      $1 USD  or more

     

lyrics

Langar vökur leiðast mér
ljóss við daufa skímu,
þegar í hjarta hreyfa sér
hvirfilbyljir ímu.

Hvert sem þankinn hvarflar frí
heims um byggðar vanga,
ekkert finn, er orki því
ólund drífa langa.

Öll náttúran er svo dauf,
engir stöku raula,
situr hver við syndaþauf
syfjaður í þaula.

Púkinn svika drýgir dans,
dofans veldur meinum,
flækjast margar flygsur hans
fyrir hvarma steinum.

Hörku tröllin hræða geð
og hrímþursarnir fornir,
dvergar, álfar, draugar með,
dísir, völvur, nornir.

þúsund plágur þrældómsins
þyngja vigt á gjaldi,
illar nornir álfa kyns
ætla eg slíku valdi.

Skuggsjá þessi leiðinleg
lýir hugmynd fróma,
vill því fljúga færan veg
fagurhöfðinn Óma.

Björt á kinnar bauga slóð,
bráins máluð stígum,
ung mig beiddi að yrkja ljóð
af Hjaðningarímum.

Þannig stillir hljóða hreim
harpan Óms á borðum:
Ása stýrði öllum heim
Óðinn kóngur forðum.

Var fyrir austan Vanakvísl
víðlent ríki þetta;
tiggi vann að töfrum sýsl,
tamur í ráðum pretta.

Hét Ásgarður Höfuðborg,
hrannar brann þar eisa;
blóthorf eitt á breiðri torg
buðlung lét þar reisa.

Niflung setti Njörð og Frey,
nóg í ráðum skyggna,
blótgoða, sem biluðu ei
Belials minni signa.

Njörður dóttur eina ól,
er sú kölluð Freyja,
hverri fegri hringa Sól,
hýrlegasta meyja.

Kurteis var og furður fríð,
fróð og mjúk í svörum,
unaðs léku brosin blíð
bæði á kinn og vörum.

Á hana sérhvað eina hlóðst,
augu manns er nýta,
enginn karla styrkur stóðst
stjörnu hrings að líta.

Þurfti mannin refla rún,
réð því fjörsins gengi.
Fylkis gjörðist frilla hún
og fylgdi Óðni lengi.

Unni mær af allri dáð
öðling tryggð með hreina,
handa skírri skikkju láð
skemmu byggir eina.

credits

from Kv​æ​ð​ama​ð​r, released August 1, 2020

license

all rights reserved

tags

about

Sigurboði Iceland

Icelandic Skáld singing from Old Icelandic Poetry, Eddic Poetry and Norse myth and Folklore

contact / help

Contact Sigurboði

Streaming and
Download help

Report this track or account

If you like Sigurboði, you may also like: